Brjánn.
Leitarbox

22.04.2006 12:34:50 / ranin

:)

Góðan daginn, einu sinni voru allir á www.folk.is en svo datt það úr tísku og allir fóru hingað á www.blog.central.is núna er www.bloggar.is orðið vinsælt og ætli flestir endi ekki með því að fara þangað. Allavega þá er erfitt að blogga hér þegar að maður er með Mozilla Firefox þannig að ég skipti yfir a www.rainin.bloggar.is svo ég gæti bloggað oftar og betur. Og bloggin min ekki alltaf að hverfa. Tékkið þið þangað og segir mér svo hvað ég ætti að gera. Halda þessari 2 ára gammalli síðu eða vera í takt við nútíman og breyta til? Hin er samt ekki fullkláruð. Er að vinna í henni. En það er eitt ótrúlega sniðugt komið á hana, kíkja nuna strax á það. Takk Jóhanna, fékk það lánað hjá þér æði.

Bless og takk - ekkert snakk.

Anna Rán.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 14:39:35 / ranin

:)

Góðan daginn, klukkan er um hálf þrjú. Nenni ekki að vera nákvæm. Þið eigið klukkur. Páskarnir á enda og skólinn að byrja aftur. Ekkert sniðugt. Finnst svo gott að sofa. Get ekki beðið eftir að prófin klárist. Þá kemur ljúfa, ljúfa sumarfrí.  Svo yndislega gott.

Enn eitt útlandið komið á útlandalistann minn. Írland. Er komin heim og skemmti mér bara rosalega vel þar. Er samt ennþá heillaðari af London. Elska bara London. En ég keypti mér alveg smá úti, ekkert alltof mikið. Hóflegt. Held að þau öll hafi samt toppað mig í innkaupum. Tumi, mamma og Jóhanna. Keyptu sér nokkra fataskápa!

En allavega páskaeggið mitt óklárað, þarf að ráðast á það.
Bless og takk - ekkert snakk.


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 20:24:57 / ranin

:)

Gott kvöld. Ætla einu sinni enn að fara að lýsa hatri mínu á mér og þessari tölvu. Var komin með svo helvíti mikið og gott efni, copyaði það og svo copyaði ég yfir það óvart og ýtti svo á delete og þessi heimska talva backaði út. Helvítið hún talva. Ef þessi talva fer ekki að passa sig mun fara fyrir henni eins og Jósefínu. Ætla ekki að sega ykkur hvað tímanum líður þar sem ég hef ekki símann minn hjá mér. Þið verðið bara að kíkja sjálf á klukkuna. En allavega það sem ég var að segja ykkur í eyðilagða blogginu var það að ég var aðeins að leika mér á netinu og rakst a þessa síðu http://www.myheritage.com/. Byrjaði að leika mér helling á henni. Þetta er síða til að sína manni hvaða fræga fólki maður líkist. Ég tékkaði á sjálfri mér og nokkrum öðrum og fékk þessar niðurstöður.

Ég sjálf líkist víst mest Bette Davis. Gamalli leikkonu sem er dáin í dag. Þótti rosalega myndarleg á sínum yngri árum. En líktist líka fleirum eins og Elijah Wood, Lee Young-ae, Allen Iverson, Emmy Rossum, Nadia Comaneci, Edith Piaf, Tarja Turunen, Eminem og Kim Basinger. Ágætur hópur fólks þarna.


                                      Spurning?

Bjarki Þór líkist mest Kiefer Sutherland. Aðalleikara 24 og íslandsvini. En hann líktist líka fleirum eins og Michelle Rodriguez, David Schwimmer, Jose Manuel Durao Barroso, Harold Pinter, Hugh Grant, Matthew Lillard og Nick Carter.


                          Spurning?

Svo tékkaði ég á henni Jóhönnu minni. Hún líkist mest Kristen Nygaard. Sé strax svipinn. Plat. En svo kom aðeins laglegra fólk eins og Aki Hakala, Kelly Clarkson, Matthew Lillard, Alicia Silverstone, Leslie Caron, Neil Armstrong, Sania Mirza, Ian Somerhalder og Jack Nicholson.


                                            Spurning?

Get ekki sagt að eg hafi valið bestu myndirnar af okkur, þetta eru þær sem ég fann í fljótu bragði. Tékkaði bara á okkur þrem í þetta sinn en á eflaust eftir að hoppa inná þessa síðu seinna meir. Þetta er svolítið skemmtilegt. Sé ykkur á sunnudaginn.

Bless og takk - ekkert snakk.


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 11:02:07 / ranin

:)

Góðan morgun, segji það því klukkuna vantar 31 mínótu í ellefu. Ástæða mín fyrir því að vera komin svona óvenju snemma á fætur er sú að ég er að fara í fermingu hjá einhverjum frænda mínum. Ekki viss hverjum, það er að sega ekki viss um að ég hafi séð hann áður, eða séð hann einhvern tíman á lífsleið minni. En ég fæ vonandi einhvern góðan mat, eða góðar kökur og fæ að vera pínu pæja. Var að pakka inn pakkanum hans, við gefum honum víst hnattlíkan. Rosa fínt.

En nú styttist orðið óðum í Írland. Ekki nema fimm dagar. Get ekki sagt að mig hlakki ekkert til. Hlakkar rosa í búðirnar. Auðvitað.

 

 

 

 

 

 

 

 

        Bjarki Þór sæti..

Bless og takk - ekkert snakk.


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 00:50:31 / ranin

:)

Gott kvöld, klukkuna vantar 18 mínótur í eitt. Sit bara og bíð eftir að Beðmál í borginni byrji. Ætla að hafa þetta örstutt. Langaði að setja einn brandara hingað af Jóhönnu síðu. Ákvað að þú myndir leyfa mér það Jóhanna.

Tveir Íslendingar eru úti í sveit að aka og sjá bíl fastan úti í kanti. Þeir ákveða að hjálpa og fara út úr bílnum. Þetta eru útlendingar og kunna íslendingarnir lítið í ensku en tekst að spyrja: "Dú jú vant help?" Útlendingarnir svara " no no this is ok" Íslendingarnir vilja endilega hjálpa og gefa sig ekki og segja: Jes ví help jú Útlendingarnir: No no this is ok Íslendingarnir: Jes jes nó vesen - ví help jú Þeir ná í reipi í bílinn sinn til að freista þess að draga bílinn - í versta falli að ýta honum upp á vegkanntinn aftur. Útlendingarnir: What are you gonna do? Íslendingarnir: First ví reip jú - ðen ví ít jú.

Fannst hann svolítið sniðugur. Hafði aldrei heyrt hann fyrr.

Bless og hlátur - enginn grátur.


» 15 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 20:08:52 / ranin

:)

Gott kvöld. Ég segi gott kvöld, því kvöldið kemur eftir klukkan sex, en núna vantar klukkuna 24 mínótur í átta. Sem þýðir að það er kvöld. Mér finnst kvöldið samt eiginlega bara ný byrjað. Hef ekki einu sinni borðað kvöldmat strax. En í Svíþjóð er hann alltaf borðaður klukkan sex. Þetta var fróðleikshorn Önnu Ránar, aftur að kvöldinu. Já, á kvöldin á maður að borða kvöldmat, borða kvöldkaffi horfa á kvöldþáttinn og svo mætti lengi telja. Svo klukkan 12 þá kemur nóttin, þá fer maður í náttfötin (nátt er dregin af nótt), borðar næturkaffi og horfir á nátthrafna. Finn ekkert svona með daginn, nema bara það að sumir horfa á Ísland í dag, það borðar engin dagsmatinn. En aftur á móti þá borðar maður morgunmatin um morgunin, hádeigismatinn í hádeiginu. En maður borðar ekki nónmatinn í nóninu. Það kallar maður bara kaffitíma.

Gallúp hringdi áðan. Leiðinlegustu 10 mínótur í lífinu mínu.

When you smiling. When you laughing. Oh, you laughing. The hole world laughing to.
(Auglýsingar lag). Kók, fær þig til að brosa.

Bless og takk - ekkert snakk.


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 23:41:20 / ranin

:)

Gott kvöld, klukkuna vantar 33 mínótur í tólf. Ekki eru það geimverur sem hafa yfirráðið núna. Nei, það er morðóður maður frá Grikklandi sem hefur stjórnina núna. Hleypur um útum allt og drepur allt með glans fjólubláu sverði. Guð stríðsins víst. Einhverju nær kannski?

Að öðru. Í dag eldaði ég hina dírindis máltíð fyrir vini og vandamenn. Nánar tiltekið Tuma, mömmu, Jóhönnu, Helgu og sjálfa mig. Heppnaðist maturinn mjög vel, kláraðist allavega allur sem er held ég góðs vitis. Er bara orðin helvíti klár í eldhúsinu. Farin að baka svo góðar kökur líka.

Eldaði vegna afmælis, Tumi bróðir átti 35 ára afmæli í dag. Næstum fertugur. Langt í að ég nái þessu aldri. Alveg 23 ár + mánuðir, dagar, klukkustundir, mínótur, sekóndur og sekóndubrot. Og svo brota, brota, brot. Ekki eitthvað svona í sundinu?

Mig þyrstir í súkkulaði.

Súkkulaði Guð, ég tilbið þig, að senda mér fullt af dýrindis súkkulaði frá himnum ofan. Sendu það beint til mín, engar millileiðir. Bankaðu þrisvar sinnum á hurðina og þá skil ég þig. Amen.

Bless og súkkulaði - Bjarki felur sig í baði.

Bank, bank, bank...


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 00:34:16 / ranin

:)

Gott kvöld eða kannski bara góða nótt. Nei, kannski ekki alveg. Klukkuna vantar fimmtán mínótur í tólf. Og ég sit bara hér og horfi á allt mannkynið eyðast upp. Já, Destroy All Humans. Hvorki meira né minna. Geimverurnar hafa náð þeim, setja þrýsting á heila þeirra og skilja hvað beljur hugsa. Þær flúga líka í þokkabót með eldsneytis vængjum. Skjótta baulandi beljum til himins í ferð sinni um jörðina.

Í dag er fimmtudagur, aðeins styttri skóladagur en dagurinn þar á undan, en aðeins lengri en morgundagurinn. Vikurnar eru farnar að svífa hjá og það styttist óðum í páskafríið, sem sýnist vera ansi pakkað hjá mér. Herbergistiltekt og utanlandsferð. Allt tekur sinn tíma.

Systir mín er svolítið góð systir. Hún er fimm árum eldri en ég, og hefur þar af leiðandi fengið fimm fleiri ár en ég til þess að safna vöðvum, en vegna góðsemis sinnar ákvað hún bara að sleppa því og leyfa öllum vöðvonum að slakkna, sem þýðir aðeins eitt. Ég er mun sterkari en hún og er það ekkert að fara að breytast í bráð. Enda þeir sem voru viðstaddir heima hjá mér þriðjudaginn 21. mars um tólf mínótur yfir tíu hafa eflaust tekið eftir úthugsuðu og fallegu hreyfingum mínum í klipum, snöggum hlaupum, undan komum, þvottahúsarfelum o.fl. Og svo fylgdu auðvitað vel úthugsuð og falleg viðeigandi karate hljóð með þessu öllu. Verið sem söngur í eyrum viðstaddra.

En þar sem geimverurnar eru óðar í að henda beljum upp í loftið, sprengja hausa á bóndum og svo mörgu öðru þá ætla ég ekki að eyða tíma mínum í þetta, heldur fara að gera eitthvað nytsamlegt við síðustu mínótur lífs míns.

Ég átti að koma reyndar með einn til tvo brandara og þar sem ég ætla ekki að deyja geimveru dauða í skuld þá auðvitað svíkst ég ekki undan því og geri eins og mér hefur verið sagt.

-"Veistu hvað það er sem hefur 167 tennur og heldur aftur af hrikalegu skrímsli?"-"Ég gefst upp!"-"Rennilásinn á buxunum mínum".
                                                                Setning sem ósjaldan hefur heyrst úr svefnherbergi Jóhönnu og Hlyns.

Pabbinn: "Siggi minn, þú varst að eignast litla systur í morgun. Storkurinn kom með hana." Siggi: "Pabbi! Ég skil þig ekki. Það er fullt af ríðilegu kvennfólki hérna í bænum og mamma er ekki sú versta. En samt ertu alltaf uppi á einhverjum fuglsfjanda!!".
                                                                Setningin sem kemur eftir allar svefnherbergisferðirnar.

Skilja allir sáttir í þetta sinn?
Bless og kex - kornflex.


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:29:40 / ranin

:)

Gott kvöld,  langar ekkert að segja ykkur hvað klukkan er. Finnst þið ekkert skemmtileg. En víst ég verð þá vantar hana 49 mínótur í tólf. Þakkið mér fyrir svo seinna.

Langar ekkert að sega við ykkur því mér finnst þið ekkert skemmtileg. Þá ætla ég ekkert að vera að skemmta ykkur með fallegu, skemmtilegu og vel úthugsuðu orðonum mínum. Já, nei fussum svei. Það ætla ég svo aldeilis ekki að gera.


I'm the bear.


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 20:29:14 / ranin

:)

Gott kvöld, klukkan er 20 mínótur gengin í níu. Sit hér og bíð eftir að riddarinn minn komi með riddara sögur til að sega mér.

Hef eitt að sega, það eru tvö afmæli frammundan hjá mér á morgun. Ég er í vanda stödd. Fjárhagslega og hugmyndalega séð. Þeir sem vilja leggja mér lið leggið inn á reikning 18234659. Eða hringið í síma 8475933 og segið mér nytsamlegar hugmyndir fyrir annað hvort ofvirkan ungling sem er að vaxa upp úr þeim árum eða gamla konu sem finnst gaman að lita og teikna. Allt vel þegið.

Unga prinsessan hoppar í sturtu og lætur aðeins þetta upp í dag.

18 ára er mikill aldur,
75 ára er algjör galdur.
                             Þetta er eftir mig.

Bless og takk - ekkert snakk.

P.S. vill bara benda á að lesa Arthúr í dag. Hann er rosa fyndinn.
       http://www.fjandinn.com/arthur/?p=101


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 21:58:33 / ranin

:)

Hata þessa tölvu og allt og alla sem tengjast þessari tölvu. Hún vill aldrei gera eins og ég segi henni að gera. Finnst hún bara hundleiðinleg.
Ég var búin að gera svo flott og svo mikið af bloggi og búin að copya og allt. Þegar ég ætla að fara að pastea því yfir hingað þá segir talvan mér bara að ætlunin cut/copy/paste virki bara ekki og að ég þurfi að fara inná svaka síðu til að gera þessa ætlun virka. Og svo kom engin síða. Ætla í mál við þá síðu. Argasta vitleysa. Iss, piss.

En svona ykkur til yndisauka þá er kvöldið gott og klukkuna vantar aðeins 22 mínótur í tíu. Sem þýðir að ég get ekki bloggað upp á nýtt þar sem það eru bara 7 mínótur í X-files og X-files félaginn minn er ekki komin heim, sem þýðir að ég get ekki horft á X-files því að ég er alein. Allt í kúk og köku núna hjá mér.

http://www.diarizing.com/wp-content/shit.jpg
Þetta er kúkur.

X-files félaginn var að stíga í hús. Þá má X-files fara að byrja. Skil ekki alveg hvernig ég gat horft á þetta alltaf þegar að ég var yngri þar sem ég er alveg dauðhrædd yfir þeim núna.

Byrjað.

Bless og takk - ekkert snakk.



» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 19:55:40 / ranin

:)

Gott kvöld, klukkuna vantar 32 mínótur í átta. Ég sit bara hérna hjá Hrafnkeli Tuma og pikka hér inn eitt og eitt orð fyrir ykkur. Kannski fyrir ykkur, ef þið lesið.

Ég er næstum því nýkomin úr bara ágætlega vel heppnaðri skólaferð. Nánar tiltekið SAM -skólaferð. Og vil nýta tækifærið hér og þakka samnemendum mínum fyrir þessa ágætlega vel heppnuðu ferð. Sandra Dögg veiktist fremur snemma og kom hjartað hennar að sækja hana, enda ekkert annað hægt að segja um Björn eftir þetta .
Fórum á föstudaginn og eins og áður kom fram komum heim í dag. Löbbuðum, hræddumst, keyrðum, átum, láum og sváfum. Nokkurn veginn öll ferðin í stórum dráttum.

Annað...

Sá eina mynd um daginn, myndina Four Brothers. Komst að því sem ég fyrir vissi að söng og leikarinn Benjamin Andre er bara einn flottasti maður sem ég hef augum litið. Fullkomið dæmi um kynþokka hvað varðar útlit og rödd. Maður dæmir aldrei persónuleikann á svona stjörnum. Hann er bara ekkert til umræðu. Maður horfir bara á allt hitt.


Benjamin Andre

Eina sögu af sjálfri mér, ég stakk á því um daginn að við Bjarki myndum fá okkur popp og súkkulaði og kók. Poppuðum poppið í örnbylgjuofninu, skárum niður súkkulaðið og settum það í örnbylgjuofnin og tók ég þetta tvennt inn í herbergi, alein. Bjarki tók kókið, mér fannst ég aftur á móti rosalega klár. Leið og ég settist í rúmmið og gerði mig tilbúna til þess að setja poppið og súkkulaðið á borðið þá skoppaði rúmmið aðeins til og súkkulaðið útum allt herbergið. Lakið og rúmmið núna eins og það sé illa skitið út.
Eftir þetta fékk ég samt að hita meira súkkulaði og heppnaðist það með prýði.

Bless og hopp - Önnu Ránar popp.


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 19:23:57 / ranin

:)

Gott kvöld, klukkuna vantar 45 mínótur í átta. Ég sit bara hérna við borðstofuborðið heima hjá Tuma sem bráðum verður gamla heimilið hans þar sem hann mun flytja í sumar.

Svo virðist sem ég hafi misst þá kunnáttu sem ég hafði í því að mála kisuandlit á mannsandlit. Var ein lítil skotta búin að bíða eftir því í allan dag og gær að fá kisuandlit á mannsandlitið sitt, en svo þegar að stóra stundin kom þá endaði hún bara sem ein appelsínugul klessa. Var hún ekki par sátt með það og tók það allt úr andlitinu um leið og í spegilinn var litið.
Svona fylgja hæfileikar manni bara í smá tíma, svo missir maður þá bara burt....


Gamlir hæfileikar...

Hún Stína er svo grönn að í hvert skipti sem hún fer niður að Tjörn kasta endurnar brauði í hana.

Bless og takk - ekkert snakk.


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 22:04:39 / ranin

:)

Gott kvöld. Klukkan er tuttugu og fimm mínótur yfir níu.
Ég sit bara hérna með sjónvarp, video og tölvu í gangi og er bara nokkuð sátt.
Er með sport lakkrís hérna líka og kók.
Gæti þar með ekki verið sáttari.
En sport lakkrís er ekkert tromp...

Get ekki beðið eftir páskafríinu, fá smá frí. Fá smá mikið af góðum svefni. Fer reyndar kannski aðeins burt, fá smá tilbreytingu í allt það venjulega. Fer kannski til Dublin eða Prag með mömmu og undir, mínus Andrea litla. Sem sagt mömmu, Jóhönnu þjóðfræði æði, og Tuma. Svona systkina ferð. Hef aldrei farið með þeim báðum út á sama tíma. Hef farið með mömmu og Jóhönnu og mömmu og Tuma. Fyndist rosalega gaman ef við förum. Haha á ykkur sem eruð ekki að fara neitt.

Hef núna eignast 4 tromp, ætla að borða þau öll núna. Nammi, namm. Því fólkið hér fyrir neðan fær ekkert tromp mínus Tumi. Hann borðar tromp.



Tumi fíni bróðir minn. Hann er þessi hvíti.

Bless og takk - ekkert snakk.

P.S. keypti mér tvær nýjar Bert bækur á bókamarkaðinum. Góði, góði Bert.


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 20:09:53 / ranin

:)

Gott kvöld, klukkuna vantar 6 mínótur í átta.

Ég var búin að skrifa svo mikið og svo fínt, ætlaði svo að fara að copy-a það svo ég gæti ýtt á staðfesta. En allt kom fyrir ekki, ég ýtti á paste í staðinn og allt fór nema einhver þrjú orð sem ég hafði óvart copy-að fyrr í kvöld. Get ekki sagt að ég hafi ekki reiðst tölvuvert og fengið mér eitt súkkulaði stykki. Gott súkkulaði stykki.

Reyni að byrja aftur... Já, var að tala um sjálfa mig sem brussu, sem mjög svo hugulsamur einstaklingur benti mér á hér um daginn. Benti mér á að ég væri brussa. Eftir þessi orð þá fór ég aðeins að pæla í þeim. Og komst að því að þetta eru annsi sönn orð. Og heldur vitur manneskjan þar af leiti. Bara í dag hef ég helt niður 4x. Allt á sama klukkutímanum, og ekkert af þessu var áætlað. Helti niður á gólf, borð, föt, fingur og sófa. Allt var þetta þurkað upp með einu og sama handklæðinu. Sem er þá að öllum líkindum orðið frekar klístrað núna ef ég þekki mjólkina rétt. Held ég.


Tegund af brussuskap?
Giggedy, Giggedy, giggedy.

Bless og takk - ekkert snakk.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11